Í kvöld dó köttur foreldra minna, hún Bella. Hún var orðin 19 ára gömul og mjög lasin undir lokin, með fjölmörg æxli um allan skrokkinn sem höfðu lamað hana að aftan. Í gær og í dag voru þau farin að valda henni vanda við öndun. Hún Bella var soldið spess, “talaði” við alla sem komu í heimsókn, vildi bara borða um jólin með okkur hinum við stofuborðið og hafði mest gaman af því að vera nálægt mömmu. þegar hún var að lesa í rúminu.