Ég rakst á 2 blog í dag, vara ykkur við að þetta eru bæði Mogga-blog. Það sem hræddi mig mest var hvernig þau voru skrifuð eða frekar ofsan og sanfæringuna bakvið hann. Merkilegt að þau voru bæði skrifuð af Kristnum siðapredikurum þar sem annar lofar Bush og hvernig hann hefur frelsað heimin en hinn vill vopna lögreglun og talar með með miklum ofsa gegn Alnæmissamtökunum.
Annar kallar sig Sóknarbarn, hann boðar að allir krakkar eigi að læra bænir í skólunum. Hinn kallar sig Samhyggð, hann vill vopna lögregluna okkar þar sem það virðist vera best að skjótta bara krimmana, mér langar að birta eina tilvitnun eftir hann.
“Ísland er land Guðs og æðsta markmið ríkistjórnar vorrar ætti að vera að vinna gegn syndinni í stað þess að vinna fyrir hana”.
Og hér er önnur tilvitnun eftir þann sama, um hina “trúlausu”.
“Ég er undrandi á að lögum um Guðlast skuli ekki beitt hér, því hér eru ærin tilefni. Ég skora á greiningardeild lögreglu að skoða skrif þessara manna og tilsvör á athugasemdarkerfum trúaðra og rannsaka þessa aðila.”
Já semsagt nú á lögreglan að hlera Siðmennt og Vantrú, þar sem það þóknast ekki sumum hvað þeir hugsa og skrifa. Þetta er nú gamalt vopn Fasista, Kommunista og núna Neo-Conservatist(a) í USA.
Er það bara ég eða er að skella á lítið trúasrtríð á Íslandi?

5 comments
Comments feed for this article
desember 20, 2007 kl. 11:03 pm
hildigunnur
Sóknarbarn er tröll, líklega hálfþrítugur nemi í HR sem skrifar líka tvö önnur tröllablogg (bæði á moggabloggi). Þekki ekki Samhyggð.
desember 20, 2007 kl. 11:04 pm
hildigunnur
heheh, ekki séns að Samhyggð sé alvöru heldur
desember 20, 2007 kl. 11:08 pm
fnordinn
Nei spurning, ég fór að spekulera í þessu á eftir. En það hroðalega við þetta er að þeir eru kannski ekki það langt frá mörgum sem eru ekki Tröll.
desember 21, 2007 kl. 11:00 am
Kalli
Það sem er scary er að fólk með heilbrigða greind og veruleikaskyn á erfitt með að þekkja í sundur grín og alvöru á nýkónskum væng stjórnmálanna.
desember 21, 2007 kl. 2:48 pm
hildigunnur
já, það er svakalegt!