Varúð! Nöldur.

Hvernig stendur á því að maður getur ekki fundið einn einasta sölumann á raftækjum í dag sem veitt eitthvað um það sem hann eða hún er að selja?!

Rétt fyrir jól ákvað konan að segja mér hvað hún ætlaði að gefa mér í jólagjöf, þar sem hún var ekki alveg viss um hvort ég myndi fíla gjöfina. Gjöfin var PS3 40 GB. Ódýrari útgáfa af PS3, minni HDD 40 GB versus 80 GB í gömlu, aðeins 2 USB port í stað 4 og styður ekki PS2 leiki. Svo sem ekkert neitt agalegt þar sem við eigum PS2 og PS3 er með Bluetooth þannig að USB er ekki endilega það áríðandi. Eina er 40 GB er soldið lítið í dag, þannig að við spurðum sölukrakkan sem sér um leikjatölvudeildina hvernig það værri að skipta út HDD í PS3. Svarið var einfalt og vitlaust…

“Ehhh, ég mæli ekki með því sko þar sem þú þarft að skrúfa vélina í sundur glatar þú ábyrgðini og líka sko er hún með sér hanaðan Sony HDD þannig að ekki er hægt að skipta skooo…. sko.”

Ég brosti bara og hugsaði með mér “Oh well hann er bara að vinna hérna fyrir jólin, svo hann þekkir þetta ekki.” Snéri mér því næst að næsta manni/krakka sem var þarna og spurði hann hvort hann þekkti eitthvað á PS3. Jú var svarði, hann ætti nú eina og ofan á allt annað sá hann um Xbox, Wii og PS3 í verslunini. Jæja þarna var einhver sem vissi eitthvað.

Svo ég spurði! “Er þetta nokkuð mál að skipta út HDD í PS3?” Svarið “Já það er ekki hægt! þar sem þetta er Sony HDD sem er sérsmiðaður fyrir PS3 skoo.”

Þarna var ég bara orðin pirraður, snéri mér að konuni og bað hana bara að ganga frá þessu ég ætlaði að skoða DVD myndir.

Eitt sem ég ætla að benda fólki á! Um leið og sölumaðurinn segir “Já ég á svona sjálfur” og telur sig þar með vera að mæla með vöruni þá er hann 1. að ljúga til að ná sölu eða 2. hefur ekki efni á því sem honum virkilega langar í.

Svo hérna fyrir neðan er smá video fyrir starfsmenn Elko, þó sérstaklega þá sem sjá um leikjatölvurnar!

PS: Þetta á við um allar gerðið PS 3.

PPS: Sony Corporation tekur það skýrt fram að ábyrgð á PS3 felur ekki niður sé HDD uppfærður. Bara að þeir taki ekki ábyrgð á glötuðum upplýsingum eða öðru sem var á eldri HDD.

Leiðrétting. Það er víst hægt að skipta um HDD í Xbox í dag. Núna nota þeir 20 og 120 gb diska en verður víst að kaupa þá frá Microsoft.