VARÚÐ. Mogga-bloggalegt nöldur!
Fyrir ekki svo löngu birtust myndir af Muahmed spámanni í Dönskum blöðum, allt var vitlaust, danski fáninn brenndur (hvar fær bláfátækt fólk í Mið-austurlöndum Danskan fánan svona einn tveir og þrír?), dönum og bara öllum þeim sem svo mikið sem skoðuðu myndirnar hótað öllu illu. Voru þetta skopmyndir af Spámanninum sem fór fyrir brjóstið á Múslimum, en það var ekki það eina, þeir sögðu líka að ekki mæti birta neinar myndir af Spámanninum, samt má finna myndir af honum í gömlum Arabískum textum og á teppum.
Nú er Hollendingum hótað vegna þessa að þar er verið að gefa út kvikmynd sem ræðir um Kóranin. Ekkert hefur verið ennþá gefið upp um hvað myndin er, en miðað við hver það er sem stendur á bakvið hana þá má maður reikna með að hún sé frekar gagnrýinin en annað.
Hollendingum er hótað árásum og blóðsúthellingum vegna þess að myndin er gefin þar út, ekki “bara” fólkið á bakvið myndina heldur öllum. Ekki er bara um einhvern lítin hóp af öfgafullum Muslimum sem eru með hótanir og læti og heimta að myndin verði bönnuð, heldur eru þarna líka ríkistjórnir landa einsog Írans og Pakistans.
Á sama tíma er gefin út kvikmynd í Íran þar sem litið er á líf Jesús frá sjónarhorni Íslams, ég tel að margir Kristnir einstaklingar myndu móðgast yfir þeirri mynd þar sem sýnt er að Jesús var ekki sonur Guðs né hafi dáið fyrir syndir manna, sem er undirstaða Kristinar trúar. Ekki var ég var við að utanríkisráðherra Ítalíu eða Spánar hafi sent bréf til utanríkisráðherra Írans og beðið um að myndin yrði bönnuð.
Okkur hefur, sem betur fer, tekist að skilja að trúabrögð frá lögum að mestu á Vesturlöndum.
En svo er pælingin mín hvar eru þessir hófsömu Múslimar? Hvar voru þeir þegar allt varð vitlaust í Danmörku vegna endur birtingar myndana, hvar eru þeir núna að segja: “Jú leyfum myndina, þetta er það sem vesturlandarbúar leyfa, gagnrýni á allt jafnt Íslam, Ísrael og Kristni”.
Eru þeir kannski að gagnrýna en það selur ekki eins mikið í blöðunum? Eða eru þeir hræddir við að gagnrýna aðra Múslima þar sem þeim yrði refsað? Bara pæling.

1 comment
Comments feed for this article
mars 4, 2008 kl. 10:32 am
Kalli
Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað. Það er alltaf best að benda á útlendingafjanda til að beina hatrinu að þegar fólk er undirokað og kúgað. Gefum þeim danska fána og Zippo.
Annars vil ég meina að við ættum að fara í bálfarir að sendiráðum íslamskra landa og heimta að þar sé sýnd virðing þeim gildum sem teljast heilög á Vesturlöndum í dag: málfrelsi og jafnrétti.
En án gríns þá er nú ansi misjafnt hve vel er búið að skilja trúarbrögð frá lögum á Vesturlöndum. Þjóðkirkjan er enn stjórnarskrárvernduð á Íslandi og á Ítalíu hefur dómari verið kærður fyrir að fjarlægja kross úr réttarsal. Lög fasistanna vernda enn kirkjuna.