Varúð – Fake Moggablog!

Ég rakst á þessa skemmtilegu frétt áðan, einn af mörgum um Ítalskt dómskerfi sem hefur verið birt á síðustu vikum.

Fyrsta ef ég mann rétt var um að lögfræðingur þurfti að borga réttarkostnað eftir að hann tapaði máli þar sem hann krafðist þess að kross yrði tekin niður í réttarsölum. Fannst, sem ég er reyndar samála með, að trúfrelsi og trúleysi ætti ekki heima í réttarsölunum á Ítalíu.

Hitt var að maður sem hafði verið að “hagræða” sér í jarðaför var dæmdur fyrir ósiðlegt athæfi á almannafæri. Mörgu finnst þetta kannski ekki merkilegur dómur en karlmenn hafa verið þekktir fyrir að “hagræða” sér þegar líkfylgd fer framhjá.

Og svo var það fyrir nokkrum árum að…. æ best að láta ykkur bara lesa þetta sjálf. Verst að niðurstaðan varð ekki nógu góð!

Snilld.