Var að hlusta á Sturlu talsmann mótmælenda í gærkveldi, þar segir hann að það sé ekkert hlustað á þá. En bíddu hverjar eru kröfurnar Sturla? Er það ekki að skoða og breytta hvíldartíman ykkar? Hvað er þá þetta ef það er ekki hlustað á ykkur? Er ekki ákúrat þarna verið fara að beiðni ykkar?

Varð soldið hissa þegar ég rakst á þetta, merkilegt að fjölmiðlamenn á Íslandi setji þetta í samhengi með látunum. Kann að vera að þarna sé ekki verið að fara 100% eftir því sem menn eru að biðja um en í öllum deilum og samningum verða menn að finna milliveg.

En annars grunar mig að það hafi soðið uppúr vegna annara mála en hvíldartíma og eldsneytisverð, heldur hafi þarna komið fram frústering og reiði margar yfir sýnilegri fjarlægð sem stjórnarherrarnir og frýr eru frá raunveruleik hins almenna borgara á Íslandi í dag. Í Bandaríkjunum er talað um “Elitist” þegar stjórnmálamenn vita ekki hvað mjólk kostar en á Íslandi hefur maður aldrei orðið var við það fyrr en kannski núna. Ráðherrar eru að faraldsfærir og gefa öllum athugasemdum langt nefn, það er nefnilega þannig að þegar það herðir að þá er það sem reynir mest á að hafa sterka stjórn, sterkan leiðtoga.

Þó ég hafi aldrei verið fyrir mikið fyrir hann Davíð sakna ég núna leiðtoga hæfileikum hans.