Jæja, við hjónin fórum í bíó í gær að sjá Iron Man.
Ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Frábær leikur, Robert Downey jr var Tony Stark, humórinn var mikil, tölvutæknin var það góð að maður hugsaði aldrei út í það að maður værri að horfa á tölvuteiknað atriði. Saga var góð og hún hélt sér við viðfangsefnið, sem sagt þeir voru ekkert að búa til “more hippy” útgáfu en sú sem hefur verið birt í Marvel blöðunum síðan 1963.
Alltaf gaman þegar innri geekin í manni fær smá konfekt.
Mæli sterklega með þessari ekki bara fyrir teiknimyndanörda heldur alla.
Þá er bara eftir, Hulk, Dark Knight, Hellboy II, Wanted, Indiana Jones 4 og Kung Fu Panda.

No comments yet
Comments feed for this article