Siðmennt var með borgaralega útför á föstudagin þann 9 Maí. Gott framtak hjá Siðmennt, athöfnin fór fram í Bænahúsinu í Fossvogskirkjugarði. Það virðist hafa truflað marga aðila, sérstaklega kristna mogga bloggara, sem vaða margir áfram í lágkúru og siðleysi. Með athugasemndir einsog “hvers vegna var þessi athöfn ekki í hesthúsi, skóla, eða húsbíl…” eða “Eina sem mér fannst skondið við þetta var að þetta var haldið í bænahúsi … tíhí..” gott að vita að menn geta hlegið að sorg annara.
Svo eru þeir sem hæðast að þessari “kaldhæðni” að Siðmennt skuli hafa valið (eða aðstandendur) Bænahús sem er vel staðset, huggulegt og veitir fólki hlutlausan vellíðan. Virkar á mig soldið einsog minnimátar kennd, fólk þurfi að hæðast að öðrum til að verja sína trú eða sjónarmið.
Vona að þið afsakið þetta “Mogga-blogg” mitt, varð bara meirra en lítið pirraður á þessu að fólk skuli ekki fá frið fyrir trúleysi sínu eða trú eftir dauðann. Fyrir mitt leyti lít ég á jarðaför mína sem persónulega stund fyrir mína nánustu til að minnast manns og kveðja. Ekki verð ég á staðnum, eða einsog George Burns sagði “Jarðaför manns sjálfs er veisla sem maður borgar en færr ekkert út úr, þess vegna held ég mína áður en ég drepst” (gróf þýðing eftir höfund bloggsins).
Annars fannst mér þessi best… svona jarðaför værri ég til í að mætta. EKKI það að ég sé eitthvað að reka á eftir henni!
William Shatner verði með ykkur!

No comments yet
Comments feed for this article