Jæja ég ætla að reyna aftur að fara að krota eitthvað niður. Ýmislegt gerst á þessu rúma ári síðan ég skrifaði síðast, einn ástæðan ég hætti var vegna veikinda í fjölskylduni. En svo skall á Bankahrunið, ég er farinn að búa einn aftur og er byrjaður í Vélini aftur.
Maður kannski fari að punkta eitthvað niður hérna 2-3 í viku eða svo, fer eftir því hvernig það liggur á mér.
En þar til næst bið ég þessum 2 aðilum eða svo sem nenna að lesa þetta góðar kveðjur.
Já vá, ég er að verða 35 ára á morgun! Gvöð.

1 comment
Comments feed for this article
ágúst 19, 2009 kl. 11:06 pm
bogga
Sko. Það er alveg rétt sem þú segir, margt hefur gerst á einu ári í þínu lífi og það eru afar stórir og eflaust sársaukaríkir viðburðir þar á meðal. En þroskandi líka og þú hefur eflaust lært margt um sjálfan þig í leiðinni. Ég held að alltaf þegar einar dyr lokast þá opnast aðrar í lífinu. Það verður örugglega viðburðarríkt árið framundan, kannski næstum nýtt líf fyrir þig þegar þú færð nýra sem þér passar og þá standa þér allar dyr opnar. Ég einhvernveginn finn það á mér að þegar við lesum þetta að ári verður þú hissa á því hvað margt hefur gerst… og eflaust verða þar atriði sem þig órar ekki fyrir í dag að muni verða á vegi þínum…Heyrumst á morgun frændi gamli…