Ég ákvað að kaupa mér prentara í byrjun Ágúst. Svo sem ekkert merkilegt, ég borgaði eitthvað um 7.000 kr fyrir hann, nota hann aðalega í að prenta texta (hef prentað um 10 bls. síðan þá, eða um 700 kr á síðu
).
En það er ekki málið, heldur það hvernig verslanir setja upp Tilboð og annað til að laða að sér viðskiptavini. Á síðu BT má sjá þennan sama prentara á TILBOÐI 9,990 kr! Ofsa fínt verð, nema hvað hann er á Ekki Tilboði í Elko á 7.695 kr. Alveg furðulegt hvað menn reyna að “plata” fólk og draga það inn með orðum einsog Tilboð!
Flest Tilboð sem maður sér í dag eru engin Tilboð, maður sparar sér stórfé á því að “surfa” aðeins og gera smá verðkönnun áður en maður hleypur út, 10 mín á netinu getur sparað manni stórfé. Í þessu tilfelli hefði maður sparað sér 2.300 kr eða svo.
Annað, ég rakst á gott Tilboð í notuðum bílum hjá B&L. Range Rover 2007 Model, keyrður 19.000 km. Gamla Verðið 9 milljónir og 900 þús. Nýja verðið ekki “nema” 6 milljónir og 300 þús. Maður er bara að “græða” 3.6 milljónir, getur maður sleppt þessu!?

No comments yet
Comments feed for this article