Jæja ég er að breytta um net, þar af leiðandi verð ég netlaus heima í 2-4 daga. Agalegt alveg, maður er orðin svo háður netinu að maður fær vækt áfall að hafa ekki netið heima. Er þetta dæmi um fíkn eða?
Ef ég fer að skjálfa eftir 24 klst. þá fer ég að hafa áhyggjur, eða fá kvíða köst að geta ekki lesið fréttinar, farið á fésbókina eða notað MSN.
Kannski er bara málið að netið sé of bindandi. Maður talar minna við fólk, notar tölvuna sem millilið og hálf partin lokast af. En jæja þetta er ekki allt slæmt, maður er þá ekki að lesa um Icesave eða kreppuna 40 sinnum á dag.
PS: Ég fæ útrás fyrir fíknini í vélini.

No comments yet
Comments feed for this article