Ég horfi yfir Alþingi og sé ekkert þar sem vekur í mér trú eða von, flestir af þeim sem sitja á þingi í dag koma beint í gegnum flokkskerfið og hafa setið á námskeiðum hjá flokkunum um það hvernig þeir eiga að vera þingmen. Þetta virkar á mig einsog “bjúrokratar” á þingi, voðalega fáir þarna sem virðast hafa einhvern alvöru eldmóð.

Kannski 1 og 1, og þá helst eitthvað af öldrunardeildini á þingi, nema Jóhanna, einsog einhver hafi blásið á kertið í henni og hún hefur ekkert kveikt á því aftur.

Ég sem einstaklingur á Íslandi finn engin tengsli við Alþingi, mér finnst einsog Alþingi hafi aldrei áður verið eins fjarlægt mér og það er núna. Einsog það sé hreinlega í öðru landi, ég finn engin tengsli við Þingheim, þeir virðast gera lítið sem ekkert (nema 6 vikur fyrir kosningar) til að nálgast okkur almenningin

Eins finnst mér fagleysi vera líka í farabroddi, skipti engu hver á þar í hlut. Hlutinir oftar en ekki unnir á 11 stundu, engin fyrirsjái í gangi, menn hlaupa frekar á eftir boltanum en að hlaupa til og fá hann beint á sig. Dæmi um þetta eru viðbrögð Fjármálaráðherra og annara í Magma málinu, á 11 stundu var panikað og menn hlupu um einsog hauslausar hænur og fengu eingu áorkað. En ef einhver fagmennska og kunnáta á málunum hefði verið fyrir hendi hefði mátt byrja á forvinnu fyrir mörgum mánuðum en nei einsog allt Íslenskt hér er öllu reddað 15 mín fyrir lokun.

Í Englandi sem dæmi fara þingmen reglulega og hitta kjósendur sínar á tilteknum skrifstofum (oft bara holur) í hverfunum/kjördæmunum og tala beint við kjósendur. Oft um mjög merkilega hlut jafnt sem ómerkilega, fólk sem finnst það hafa farið halloka í einhverjum málum geta fengið þingmen sína til að beita sér í þeim málum. Hér jú þú getur pantað tíma og komið og hit á þá ef þeir hafa tíma.

Mér fannst upphafið af Icesave sem gott dæmi um þetta, þar ætluðu núvernadi stjórnvöld að troða þessu í gegn án þess að segja þjóð né þingi hvað það værri sem værri verið að kjósa. Svo panikaði PR flokkurinn og jú þetta varð að umræðu sem svo endaði einsog margt annað á þessu þingi,  sem prump.

Já jæja þá er ég búin að nöldra ala Mogga Blog style.