Mér langaði bara að endursýna þetta bréf, sem Jón Jósef fékk frá RSK. Þeir sem vita ekki hver hann er, þá er þetta höfundur gagnagrunsins rel-8 sem sýnir öll krosseignatengsl frá upphafi skráningu fyrirtækja til dagsins í dag.
“Mér var að berast í pósti endurgreiðsla venga samnings við RSK. Engar skýringar gefnar. Má draga þá alyktun að samningnum hafi verið rift ?
Á RSK í einhverjum vandræðum með tjáninu, eða telja þeir svona meðferð eðlilega ?
Þá barst mér bréf frá persónuvernd þar sem íað er að því að verkefnið hafi verið unnið á vegum RSK og/eða Lögreglu og efast um
að ég hafi fengið leyfi til þess að fá testgögn til þróunar þess.
RSK þekkir alla sögu kerfisins, þ.m.t. ósk mína um að fá testgögn til þróunnar kerfisins á eigin vegum, 3 starfsmenn þar hafa auk þess haft prófunaraðgang með þessum testgögnum, sem n.b. innihalda engar upplýsingar sem geta flokkast sem viðkvæm persónugögn.
Það er full ljóst í mínum huga að málið snýst alls ekki um persónuverndarmál.
Kv.
Jón”
Ég hef alltaf verið mikil aðdáandi opins þjóðfélags og allt uppá borðinu í ríkisrekstri og viðskiptalífinu. Menn forgerðu sér rétt til 100% leyndarhjúps þegar þeir fara að leika sér með fé almennings eða setja þjóð á hausin. Kannski er ég bara svona skrítin, en þetta er mín skoðun.
PS: Samt er ég á móti niðurfellingar Bankaleyndar, upp að ákveðnu marki, gjaldþrot sem dæmi eiga ekki að njóta hennar.

No comments yet
Comments feed for this article